|
Þar sem íslensk heiti margra þessara þátta eru nokkuð á reiki nota ég
víða ensk eða alþjóðleg heiti í staðin og vona að menn skilji það.
Fjöður: Það er það sem fjaðrar í bílnum. Loftpúðar og gormar
kallast hér fjaðrir.
Hliðarstífa: Það er stífan sem heldur hásingunni svo hún hreyfist ekki
til hliðar hægri vinstri
Linkuð fjöðrun: Það er fjöðrunarkerfi á heilli hásingu þar sem stífurnar
taka ekkert vægi frá hjólunum heldur bara tog og þrýstiálag.
Fjöðruð vigt: Það er sá hluti bílsins sem hreyfist með dekkjunum.
Hásingar eru fjöðruð vigt.
Yfirdempun: Ef horni bílsins er haldið niðri og síðan sleppt, þá
sígur hornið upp aftur án þess að fara yfir núllstöðu og niður aftur. Bíllin
dúa ekki.
Undirdempun: Ef horni bíls er haldið niðri og síðan sleppt, þá fer
hornið upp fyrir núllstöðu og niður aftur. Bíllin dúar.
Veltistífni: Það er mótstaða fjöðrunarinnar gegn því að bíllinn halli
miðað við vegin. Veltimjúkur bíll hallast talsvert bara þegar bílstjórinn
sest inn. Jafnvægisstöng eykur veltistífni en minka veltidempun.
Veltidempun: Ef ýtt er til hliðar á topp bílsins og síðan sleppt og
bíllin vaggar, er hann undir dempaður á velting.
Pitmanarmur: Armurinn sem festist á stýrisvélina.
Stýrisarmur: Það eru armarnir sem tengja stýrisganginn við hjólin.
Stýrisstöng: Stöngin sem tengir pitmanarminn við stýrisganginn.
Camber: Það er hornið sem dekkið myndar við lóðlínu séð að frama eða
aftan á bílinn. Plús þýðir að hjólið hallar út að ofan.
Caster: Það er hornið sem lína dregin í gegn um spindlana myndar við
lóðlínu séð frá hlið á bílinn. Plús þýðir að línan halli aftur að
ofan.
Caster ofsett : Það er bilið (lárétt) á mill línu sem er
dregin í gegn um spindlana og miðju hjólsins séð frá hlið á bílinn.
caster offsett er nær alltaf núll á bílum með hásingu að framan.
Kingpinnhorn: Það er hornið sem lína dregin í gegn um spindlana myndar
við lóðlínu séð að frama eða aftan á bílinn.
Steering offset:
Það er hve langt frá fyrrgreindri línu miðja dekksins verður þar sem það
liggur við jörðina (þá skiptir máli breidd felgunar og hæð dekksins).
To-in To-out. Það er stefna hjóla á sama öxli. 0 þýðir samsíða.
-3 þýðir að hjólin stefni saman sem nemur 3 millimetrum mælt faraman og
aftan á úthring dekkjana. To-in er innskeifur. To-out er útskeifur.
|