|
Leiðbeiningar við umfelgun á völsuðum felgum |
| Áfelgun: Þegar dekk er sett á felgu með völsuðum köntum er mikilvægt að hafa
eftirfarandi í huga: Það þarf ekki að líma dekk á valsaðar felgur. Þó við þekkjum enginn dæmi þess að dekk snúist eða affelgist á völsuðum felgum þá er mönnum frjálst að líma líka. Best er að gera það með því að setja hárfínfína límrönd í kverkina á felgunni áður en dekkið er sett upp á hana. Síðan er dekkjafeitin sett á dekkið með tusku, þess gætt að lítið eða ekkert verði umfram og bara sett á lárétta flötinn en ekki á hliðina. Felgu kanturinn skefur svo feitina af dekkinu áður en það sest í límið. Affelgun: Venjulega er hægt að affelga kantvalsaðar felgur í vélum sem rúlla
kantinn af án þess að dekkin skemmist Venjulegar klemmur ráða illa við
þetta og er hættara við að skemma dekkin. |
|
Hafðu samband ef þig vantar frekari upplýsingar í síma 564-2195. |