gj logo
Heim   Kort   Innréttingar   Vélsmíði   Endurbætur   Felgur fyrir jeppamenn   Ýmislegt  
Hönnun

GJ hefur hannað margvísleg tæki fyrir íslenskan iðnað. Helstu kostir þessara tækja eru að þau eru íslensk og smíðuð með þarfir Íslendinga í huga. Við hönnun þeirra eru nánast eingöngu notaðir íhlutir sem eru lagervara hjá íslenskum byrgjum sem skiptir miklu máli við viðhald. Margir kannast líka við að hafa þurft að fá mann frá framandi landi með miklum tilkostnaði til að stilla eða laga jafn vel ekki merkileg tæki. Með því að teikna CAD model af því sem verið er að hanna/smíða er hægt að skoða virkni og uppsetningu þess og leysa mestan hluta þeirra vandamála sem upp koma strax á teikniborðinu. Þetta gerir það að verkum að fyrsta eintakið sem smíðað er verður mun betra og módelsmíði er að mestu úr sögunni. GJ CAD teiknar flest þau verkefni sem inn koma, einfaldlega vegna þess að það borgar sig.

  

Skammtari fyrir loðnuhrogn tekur 100 box  í magasín, allt að 20 skammta á mínútu, ræður vel við dollur úr mjúku plasti, fyrir mjög mismunandi skammtastærðir.

 

Lokari fyrir plast box með smelltum lokum. Lokar alsjálfvirkt, tekur 200 lok í magasín og lokar allt að 30 dollum á mínútu, ræður vel við dollur úr mjúku plasti.

lokari

Innmatari fyrir niðursuðu dósir eða krukkur.Tekur heil bretti og setur dósirnar í einfalda röð inn á færiband.

 

Vél sem var hönnuð fyrir sögusýninguna Landnám Íslands í Borgarnesi. Þetta er vél sem á að líkja eftir ölduhreyfingu Atlantshafsins þar sem 6. hver alda er hnútur eða öðruvísi en hinar. Ofan á vélinni er stefni víkingaskips þar sem gestir safnsins geta prufað að stíga ölduna. eins og Ingólfur forðum.
Stutt Myndband

lokari

Skæralyfta sem var gerð fyrir uppsetningu Íslensku óperunnar á litlu hryllingsbúðinni. Lyftan er 150 kg að eiginþyngd og getur lyft 200 kg upp um 3 metra á 8 sek

lokari

Dreifari fyrir glös til að hægja á ferð glasanna og þétta þau þannig að hægara sé að handtína glösin í pakkningu. Hentar vel þar sem ekki borgar sig að koma við sjálfvirkri ísetningu.


flaedilina

Gelístankur Fyrir Farsæl GK Hannaður og smíðaður í samvinnu við STG isvélar


Heim

flaedilina
Meðal verkefna í hönnum er:
vélhlutahönnun matvinnsluvélar færibönd flæðilínur áleggshnífar brauðskurðarvélar farsvélar filmupökkunarvélar formunarvélar hakkavélar hamborgaravélar kassaprentarar límbandsvélar loftskiptivélar vakúmpökkunarvélar lokunarvélar pylsusprautur pökkunarvélar og iðnstýringar pökkunarlínur skammtarar skurðarhnífar vogakerfi flokkara rúllubrautir kassalyftur kassalímingavélar límingavélar gardínustýringar og öll almen vélahönnun
Hafðu samband við okkur ef þig vantar frekari upplýsingar : Með tölvupósti eða í síma 691-9749.