gj logo

Heim   Kort   Hönnun   Innréttingar   Vélsmíði   Endurbætur  Ýmislegt


Felgur
Verðlisti  og  Leiðbeiningar við umfelgun

Felgur í öllum stærðum fyrir jeppa, gerðar með það að markmiði að hægt sé að nota dekkin á litlu eða engu lofti. Efnið í breikkanir er haft 2 mm sem getur sparað allt að 4 kíló á felgu án þess að það komi niður á styrk hennar undir bílnum. Allar felgur eru með völsuðum kanti sem passar við dekkið sem á að fara á felguna.

Völsun á felguköntum
Þessi aðferð við að koma í veg fyrir að dekk affelgist eða snúist á felgum hefur reynst mjög vel. Kostir valsins umfram hefðbundna suðu er fyrst og fremst að valsinn stækkar ummál kantsins og sætisins en með ásuðu þá hækkar kanturinn en sætið gerir það ekki og jafnvel minkar sætið vegna þess að suðan dregur sig saman.Valsin breytir halla sætisins og hægt er að ráða hæð kantsins að vild en við höfum fundið út ýmis mál sem eiga við ákveðin dekk.. Við reynum að ráðleggja mönnum varðandi dekk sem ekki er búið að valsa felgur fyrir áður og hefur það gengið áfallalaust.
Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir af felgu sem við söguðum í sundur til að sýna hvernig valsinn okkar hækkar kantinn og breytir lögun sætisins á felgunni.

Felgusneiðin

 

Ytri kanturinn hægamegin á myndinni var 1 mm hár en er 3,5 mm eftir völsun
Innri kanturinn var  0,5  en er 1,5 mm eftir völsun

 

Innri kanturinn 1,5 mm hár


Ytri kanturinn 3,5 mm hár

 

Hafðu samband ef þig vantar frekari upplýsingar : Með tölvupósti eða í síma 6919749